Leyserskeri getur skorið í gegn eða brennimerkt á hluti. Við bjóðum uppá koltvíoxíða (CO²) leysiskera og algengustu efnin eru: Pappír, bylgjupappír, krossviður, MDF, plexígler, leður og margar tegundir af textíl. Einnig er hægt að brennimerkja á gler og málma (málmurinn þarf að vera þakinn sérstöku efni sem við bjóðum upp á svo geislinn endurspeglist ekki).
Verðskrá
Tækja notkun
Þegar tæki er notað á opnunar tíma samhliða öðrum notendum. Á opnunar tímum geta myndast raðir í tækin og þá er mikilvægt að skiptast á. Þegar raðir myndast má einungis ljúka við eitt skjal í einu, þá er næsta notanda hleypt og þú færist aftast í röðina.
Verð fyrir tækjanotkun. Miðað er við að tækið sé notað í klukkutíma.
Frumgerðar vinna 500 kr*
Læra á tæki 500 kr*
Persónuleg verkefni 500 kr*
* Tækjanotkun er innifalin í efnisgjöldum
Non profit smáframleiðsla 5.000 kr.
Smáframleiðsla í tekjuskyni 10.000 kr.
Tækja bókun
Þegar tæki er bókað er það algerlega tekið frá fyrir verkefni í þann tíma sem er tækið er bókað. Þess vegna kostar tækja bókun en ekki tækja notkun á almenum opnunar tíma.
Verð fyrir tækjanotkun. Miðað er við að tækið sé notað í klukkutíma.
Frumgerðar vinna 1.000 kr.
Læra á tæki 1.000 kr.
Persónuleg verkefni 1.000 kr.
Non profit smáframleiðsla 10.000 kr.
Smáframleiðsla í tekjuskyni 20.000 kr.
Efniskostnaður
Plötur
Nemendur og kennarar fá 500 kr. afslátt af plötum
60x30 cm 100x70 cm
Timbur 4mm 2.000 kr. 6.500 kr.
Plexy 3mm:
-Glært 2.000 kr. 6.000 kr.
-Svart og hvítt 2.500 kr. 7.500 kr.
-Litir 3.500 kr. 10.500 kr.
Afgangar 500 kr.
Annað
Glös 500 kr.
Flöskur 500 kr.
Speglar 500 kr.
Kostnaður við tækjanotkun er innifalin í efnisgjöldum þegar fólk kaupir efni í Fab Lab, nema þegar um smáframleiðslu er að ræða. Þegar fólk kemur með önnur efni er óvíst hvort það passi fyrir tækjabúnað Fab Lab og því þarf að athuga þarf efnin sérstaklega.
Talaðu við starfsmann ef þú kemur með þitt eigið efni.
Stærð: 1000x700 mm
Dýpt: 343 mm
Skrár: .PDF
Upplausn brennimerkingar: 75 til 1200 DPI
Styrkleiki Leysis: 40 vött
Brennimerkja | Skera | Frekari Upplýsingar | |
Viður | |||
Krossviður | ✓ | ✓ | Hámark 6mm þykkt í skurð |
Spónaplötur | ✓ | ✓ | Hámark 6mm þykkt í skurð |
MDF | ✓ | ✓ | Hámark 6mm þykkt í skurð |
Pappír | |||
Karton | ✓ | ✓ | |
Bylgjupappi | ✓ | ✓ | |
Blað | ✓ | ✓ | |
Plast | |||
Plexígler (Akríl) | ✓ | ✓ | Hámark 6mm þykkt í skurð |
Gúmmí | ✓ | ✓ | |
Asetalplast (POM/Delrin) | ✓ | ✓ | |
Steinefni | |||
Flísar | ✓ | x | |
Kórían | ✓ | x | |
Marmari | ✓ | x | |
Gler | ✓ | x | |
Spegill | ✓ | x | Brennimerkt að aftan |
Lífrænt Efni | |||
Textílefni | ✓ | ✓ | |
Leður | ✓ | ✓ | |
Roð | ✓ | ✓ | |
Málmar | | ||
Málaður Málmur | ✓ | x | |
Húðaður Málmur | ✓ | x | |
Berir Málmar | * | x | |
Eir | * | x | |
Títan | * | x | |
Anódíserað Ál | ✓ | x | |
Ryðfrýtt Stál | * | x | |
