Lærðu að búa til (nánast) hvað sem er - á tuttugu vikum. Það er kjarninn í Fab Academy sem er leiðandi nám á sviði stafrænnar hönnunar og framleiðslu. Fab Lab Reykjavík býður upp á aðstöðu, kennslu og leiðsögn fyrir nemendur sem taka þátt í Fab Academy 2025. (sjá nánar frétt Hvað er Fab Academy)
Fyrir hverja er Fab Academy?
Fab Academy er ætlað öllum þeim sem vilja öðlast færni í stafrænni hönnun og framleiðslu. Til að taka þátt í náminu er enskukunnátta og grunnþekking á tölvunotkun nauðsynleg. Mikil áhersla er lögð á stjórnun tölvustýrðra véla t.d. geislaskerum, fræsum og þrívíddarprenturum, ásamt hönnun og framleiðslu á rafrásum, lóðun og forritun á örstýringum. Fyrir þau sem hafa litla til enga kunnáttu í 2d og 3d hönnun, stafrænni framleiðslu, rafeinda forritun og vefhönnun er Fab Academy fullt nám.
Hvernig tek ég þátt?
Til þess að taka þátt í Fab Academy er nauðsynlegt að geta komið í Fab Lab smiðju til þess að nota tækin. Fyrirlestrar og verkefnaskil fara fram á netinu á ensku en leiðbeinandi í Fab Lab Reykjavík veitir leiðsögn og kennslu á íslensku (eða ensku). Í hverri viku er fyrirlestur þar sem farið er yfir nýtt viðfangsefni og verkefni sett fyrir. Farið er yfir tækin og tólin í Fab Lab smiðjum og nemendur prófa sig áfram og „læra með því að gera“. Allir þessir fyrirlestrar og verkefni koma saman í lokaverkefni sem allir nemendur þurfa að klára til þess að útskrifast.
Hagnýtar upplýsingar
Fab Academy 2025 hefst um miðjan janúar 2025 og tekur um fimm mánuði og í júní kynna allir nemendur lokaverkefni sín. Þriggja klukkustunda fyrirlestrar fara fram á miðvikudögum og þriðja hvern mánudag er auka fyrirlestur þar sem sérfræðingar fara nánar yfir mismunandi viðfangsefni. Einnig eru vikulegir opnir tímar fyrir spjall og spurningar. Að auki verða vikulegir fundir með öðrum Fab Lab smiðjum á Íslandi þar sem farið verður yfir verkefni vikunnar. Samhliða fyrirlestrum og fundum verja nemendur þó nokkrum klukkustundum á viku í smiðjunni við að klára vikuleg verkefni og vinna að lokaverkefnum. Fyrir flesta er Fab Academy (nánast) fullt nám. Kostnaður við Fab Academy er hægt að sjá hér.
Allar frekari upplýsingar um námið er hægt að nálgast á síðu Fab Academy. Einnig er hægt að hafa samband við Fab Lab Reykjavík fyrir allar frekari spurningar.
Comments